Þú breytir sjálf/ur
VöxturPremium
Opnunartími, verð, tilkynningar og myndir. Breyttu úr símanum og breytingin er komin á síðuna. Prófaðu að breyta verðinu.
Vefsíðugerð fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Vivid smíðar einfaldar og hraðar vefsíður fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki á Íslandi, settar upp frá byrjun svo þær finnist á Google og í gervigreind. Á bak við þær er margra ára reynsla af rekstri vefinnviða og vefsíðna.
Engin flókin kerfi og ekkert sem þú þarft að læra. Síða sem er rétt sett upp, hröð og auðvelt að halda við.
Titlar, lýsingar og upplýsingar um fyrirtækið sem Google les beint: heimilisfang, opnunartími og þjónusta. Við hjálpum þér líka að setja upp Google-prófílinn.
Fólk spyr ChatGPT, Claude og aðrar gervigreindir æ oftar. Við setjum upp upplýsingar sem þær lesa beint, m.a. llms.txt og skipulögð gögn, svo svörin um þig séu rétt.
Flestir finna þig í símanum. Síðurnar eru léttar og fá fullt hús stiga í hraða- og aðgengisprófi Google (Lighthouse).
Opnunartími, verð, tilkynningar og myndir. Þú breytir þeim úr símanum á tveimur mínútum, án þess að geta skemmt útlitið.
Lénið (t.d. stofan.is) er skráð á þitt fyrirtæki. Ef þú hættir einhvern tímann færðu síðuna með þér.
Hýsing, öryggisuppfærslur og endurnýjun lénsins eru í mánaðargjaldinu. Þú þarft aldrei að hugsa um tæknina.
Eitt stofngjald fyrir smíðina og fast mánaðargjald fyrir hýsingu, lén og rekstur. Engir faldir liðir.
Ein vönduð síða sem segir allt sem skiptir máli.
49.000 kr.
+ 7.900 kr. á mánuði
Fyrir fyrirtæki sem vilja sýna meira og sjást betur.
89.000 kr.
+ 9.900 kr. á mánuði
Allt sem þarf, líka fyrir erlenda viðskiptavini.
149.000 kr.
+ 14.900 kr. á mánuði
Sjáðu hér fyrir neðan nákvæmlega hvað er í hverjum pakka.
Hér sérðu hverja einingu virka og í hvaða pökkum hún er. Þú getur alltaf fært þig upp um pakka seinna.
VöxturPremium
Opnunartími, verð, tilkynningar og myndir. Breyttu úr símanum og breytingin er komin á síðuna. Prófaðu að breyta verðinu.
GrunnurVöxturPremium
Upplýsingar sem ChatGPT, Claude og aðrar gervigreindir lesa beint (llms.txt og skipulögð gögn), svo svörin um þig séu rétt.
Opið virka daga 9–17
Bókaðu tíma á netinu
Premium
Öll síðan á ensku fyrir ferðamenn og erlenda íbúa, með tungumálahnappi. Prófaðu að skipta.
VöxturPremium
Sýndu verkin þín. Myndirnar eru minnkaðar sjálfkrafa svo síðan haldist hröð, og Google fær lýsingu á hverri mynd.
Nei, komdu bara og taktu númer.
Já, gengið er beint inn af götunni.
VöxturPremium
Svör við því sem fólk hringir annars til að spyrja um. Google og gervigreind geta vitnað beint í svörin.
VöxturPremium
Allt að 5 síður: sér síða fyrir verðskrá, þjónustu eða um okkur, hver með sína fyrirsögn og lýsingu fyrir Google.
GrunnurVöxturPremium
Stutt skilaboð efst á síðunni, t.d. lokað um jólin. Hverfur sjálfkrafa eftir lokadaginn.
GrunnurVöxturPremium
Tengist bókunarkerfinu sem þú notar nú þegar, t.d. Noona, á öllum síðum og í símanum.
GrunnurVöxturPremium
Við setjum upp prófílinn sem birtist með korti og opnunartíma þegar fólk leitar að þér, og tengjum hann við síðuna.
Premium
Stutt yfirlit í hverjum mánuði: hve margir fundu þig á Google, hvaða leitarorð og hve margir hringdu.
Ertu þegar með vefsíðu? Sýnileikapakkinn (24.900 kr.) lagar það sem skiptir máli fyrir Google og gervigreind á síðunni sem þú átt.
Þú sérð síðuna áður en þú ákveður nokkuð.
Við skoðum það sem til er um fyrirtækið og gerum drög að síðunni á nokkrum dögum. Þú borgar ekkert fyrir að skoða.
Við förum yfir textann, verðin og myndirnar með þér og lagfærum.
Á þínu léni. Við skráum hana hjá Google og tengjum við Facebook-síðuna og Google-prófílinn þinn.
Vefsíða kostar frá 49.000 kr. (Grunnur), 89.000 kr. (Vöxtur, allt að 5 síður) eða 149.000 kr. (Premium, með enskri útgáfu), auk mánaðargjalds frá 7.900 kr. sem nær yfir hýsingu, lénið og rekstur. Drögin kosta ekkert.
Drög eru tilbúin á nokkrum dögum. Þegar þú ert sátt/ur fer síðan í loftið á þínu léni, oftast innan viku.
Nei. Það getur enginn lofað heiðarlega. Við sjáum til þess að allt sem Google horfir á sé rétt sett upp, og að síðan sé hröð og skýr. Það skiptir mestu fyrir fyrirtæki sem þjóna sínu nærumhverfi.
Við gerum síðuna eins auðlesna og hægt er fyrir gervigreind: skráin llms.txt með helstu upplýsingum, skipulögð gögn um fyrirtækið og algengar spurningar. Enginn getur tryggt að gervigreind vitni í síðuna, en þegar hún gerir það eru upplýsingarnar réttar.
Þú. Lénið er skráð á fyrirtækið þitt. Ef þú hættir í áskrift færðu skrárnar afhentar og getur hýst síðuna annars staðar.
Hýsing, endurnýjun lénsins, öryggisuppfærslur og að síðan haldist í lagi. Þú getur breytt opnunartíma, verðum og myndum sjálf/ur hvenær sem er.
Já. Síðan tengist því kerfi sem þú notar nú þegar, t.d. Noona, með „Bóka tíma“ hnappi.
Já, með sýnileikapakkanum: við lögum það sem skiptir máli fyrir Google á síðunni sem þú átt, án þess að smíða nýja.
Margra ára reynsla
af rekstri vefinnviða og vefsíðna
Mörg góð fyrirtæki eru bara með Facebook-síðu, eða vefsíðu sem Google skilur ekki. Viðskiptavinir sem leita að þjónustunni í hverfinu finna þau því ekki.
Vivid breytir því á viðráðanlegu verði: vönduð síða, rétt uppsetning fyrir Google, og rekstur sem heldur síðunni í lagi árum saman.
Sendu okkur línu með nafni fyrirtækisins. Við gerum drög á nokkrum dögum, án nokkurrar skuldbindingar.
hallo@vividvefir.page